Bloggið okkar
Aðrir bloggarar
20.09.2006 17:41:13 / Bryndís

Brynja og Sóley til hamingju með prinsessurnar!

Jæja skvísur,

Langaði bara að setja hér inn kveðju frá mér. Elsku stelpur innilega til hamingju með prinsessurnar....finnst svo stutt síðan ég var heima með minn litla prins, alveg ótrúlegt að það sé komið ár og rúmlega það:S.

Gangi ykkur öllum allt í haginn.

kv. Bryndís


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 19:38:55 / Brynja

Er ekki komin tími á hitting???????

Hvað segið þið um það gellur?  Mér finnst vera mjög langt síðan við hittumst, sem er samt ekkert langt síðan, hehe. en samt, ég væri alveg til í hitting fljótlega ef þið hafið einhvern tíma.

Hvað segið þið um það????

Kv. Brynja


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 20:25:45 / Berglind

Eruð þið til í hitting?

Sælar stúlkur!

Nú er mín voða upptekin í skólanum og á ekkert líf, maðurinn fór burt með börnin á miðvikudaginn þar sem leikskólinn var lokaður á föstudaginn svo ég hefði nú næði.

En allavega er þetta alveg að verða búið í bili, fer í 2 próf á fimmtudaginn og svo eitt 10. maí, en ég hef nú ekki miklar áhyggjur af því.

Þessvegna datt mér í hug að bjóða ykkur heim miðvikudaginn 3. maí, það er þá fyrsti miðvikudagurinn í maí og starta ég þá hringnum.

Hvernig líst ykkur á?

kv. Berglind


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 10:12:10 / Brynja

Hvenær að hittast????

Hæ þið.  Hvenær eigum við að fara að hittast? það er orðið ansi langt síðan við hittumst síðast.

Kv. Brynja


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 19:07:37 / Brynja

Jæja skvísur

Þá er maður komin heim frá Kanarí, það munar bara 30 stigum á hitanum, brrrrrrrr.  Ætli við verðum ekki bara komin með kvef næstu daga, ég gæti trúað því.  Það var ÆÐI á Kanarí og við höfðum það SVO gott, bara í leti, gengum reyndar alveg helling, vorum ekkert rosa dugleg í sólbaði enda finnst mér það ekki mjög skemmtilegt.  Samt eitthvað á hverjum degi.  Það er rosalega gott að vera komin heim, sérstaklega saknaði ég rúmsins og sængurinnar, það er ógeð að sofa með lak, ojoj.  Svo það er bara heitt bað og dúnsængin í kvöld, mmmmmmmmm.

Hlakka til að hitta ykkur fljótlega

Kv. Brynja


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 22:12:09 / Bryndís

Komin heim frá USA!!

Jæja stelpur mínar,

þá er maður mættur heim á Frón og ekki tekur nú veðrið við mannn ufff þvílíkur kuldi og svo rok og rigning í dag....ætlar ekki að fara koma vor eða sumar????

En hvað með það vorum við búnar að ákveða að festa niður dag í mánuði til að hittast og hvernig á röðin að vera....man ekki alveg hvort við vorum búnar að ákveða eða hvað en mig lagar þar svolítið þar sem alltaf er svo mikið að gera hjá manni þá er gott að hafa fasta daga svo maður mæti nú!!

Kannski væri fínt að hafa þetta bara í stafrófsröð þannig að Sóley var síðust og þá er bara næst sú sem er á eftir henni í stafrófinu...hvernig líst ykkur á það???

Bið að heilsa í bili þarf að fara sinna litla stubb

kv. Bryndís


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 12:15:06 / Sóley

TIL HAMINGJU BRYNJA....

Jæja, það fjölgar áfram í hópnum okkar góða. Hún Brynja ætlar að vera samferða mér í óléttumálunum því þau eiga von á kríli. Til hamingju Brynja, Óðinn og Helga Rún. Knús, Sóley

» 5 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 12:29:37 / Sóley

Takk fyrir síðast

Takk fyrir síðast skvísur. Það er alltaf jafn gaman að hitta ykkur. Annars er eitthvað lítið að frétta. Ég er ofsa ánægð í nýju vinnunni minni. Heilsan er með ágætum og svaka gott að losna við mestu ógleðina. kv. Sóley

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.01.2006 00:48:28 / Brynja

hæ hæ

Jæja stelpur, er ekkert að gerast skemmtilegt hjá ykkur?  Mitt líf er bara að ganga sinn vanagang, ekkert spennandi, eða jú kannski launahækkun í sjónmáli, eða það segir Gunnar Birgisson alla vega, "það er svo gott að búa í Kópavogi" hehe, já einmitt.:haha:  Fannst bara fyndið í spaugstofunni einhverja helgina um daginn þegar þeir voru að gera grín af honum, standandi á brú og kalla þetta "það er gott að búa í Kópavogi" og bjóðandi konfektkassa.  Já, ég fékk sko konfektkassa frá honum í jólagjöf, það lá við að ég henti honum.  Það voru alveg 10 molar í þessum kassa, svaka bónus, eða hitt og heldur.:klikk:

En endilega bloggið eitthvað skemmtilegt.


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 15:18:57 / Brynja

Til hamingju Sóley

Ég vildi bara óska henni Sóley okkar, og auðvitað Gússa og Bryndísi litlu, til hamingju með bumbukrílið:D:D.  Það er alltaf gaman þegar það fjölgar í mömmuklúbbinum okkar góða.

Svo vil ég líka hvetja ykkur sætu gellur að segja ykkar skoðun á umræðunni hennar Bryndísar um að fara að hafa fasta daga í mánuði að hittast.  Ég er alveg til í það, bara hafa svona alvöru "saumó" einn dag í mánuði;);).

Kveðja Brynja


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 07:54:32 / Hrönn

ööööö?

hmm..afhverju breyttist letrið hjá mér á miðri leið ??

hehehe sýnir kannski hvað ég er mikið nörd á tölvur8|


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 07:52:14 / Hrönn

Ég er víst hér!

Halló Halló!!

Vei! Ég er að blogga í fyrsta sinn á ævinni:)8)

Það er brjálað að gera á mínum bæ. Ég er að reyna að skrifa lokaritgerðina og að gera 30% verkefni í áfanganum sem ég er í líka og....(pása til að anda) Við erum byrjuð að setja upp loftklæðninguna þá á BARA eftir að mála ALLA efri hæðina og taka bílskúrinn í gegn:cry: Þá getum við sett á sölu og ég farið að einbeita mér 100% að lærdómnum8|

Takk fyrir síðast stelpur! Ég gleymdi auðvitað bolnum Berglind;) Fæ hann bara aftur næst.

Bless í bili! Kv. Hrönn


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.01.2006 00:45:09 / Sóley

Byrjuð í nýju vinnunni

Sælar!

Þá er ég byrjuð í nýju vinnunni, búin að mæta 2 daga og líkar þvílíkt vel.  Það er æðislegur mórall þarna og maður finnur það bara strax.  Ég fitta strax vel inn í hópinn sem ég starfa með og er bara í skýjunum með þetta.

Lokaverkefnið mitt gekk mjög vel þótt síðustu dagar fyrir skil hafi verið annasamir. Ég fékk 9 fyrir það og var auðvitað lukkuleg með það. Útskriftin var svo á laugardagin síðasta og ég hélt smá veislu hérna heima fyrir nánustu fjölskyldu og vini. Ég náði að fylla litlu íbúðina mína vel þótt það kæmu nú ekki margir 0

Jæja, nóg um mig, nú vil ég heyra meira frá ykkur. Gaman að sjá að Bryndís er byrjuð að blogga hérna líka, þá vantar bara að virkja Hrönn og þá erum við allar komnar inn.

kv. Sóley


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.01.2006 00:43:56 / Bryndís

Gleðilegt nýtt ár 2006

Jæja skvísur. Já Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla og þau gömlu. Mikið var ég nú svekkt að hafa ekki komið og hitt ykkur síðast en ég var því miður búin að lofa mér annars staðar og borga fyrir þann tíma....en ég hitti ykkur bara næst. Eigum við ekki að fara setja þessa hittinga okkar í einhverjar fastar skorður hittast 1-2-3 í mánuði og þá einhvern fastan dag (sem er samt sveigjanlegur)?? Æji það vill oft verða þannig að langur tími líður á milli ef Brynja tekur ekki á skarið 0 ... Finnst hún vera okkar stoð og stytta og takk fyrir það Brynja mín...er sko ekki að setja út á okkur hinar.....það virðist bara vera svo mikið að gera hjá okkur öllum. Jæja ætla ekki að rausa meira bara mínar hugleiðingar núna hehe.

Kv. Bryndís


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.01.2006 00:42:51 / Brynja

Hvernig er þetta með ykkur?

Hæ hæ, var bara að spá hvort þetta væri kannski ekkert að virka, þetta blogg sem sagt.  Ég hef sjálf voða gaman af þessu00, þó svo að ég kannski skrifi ekki á hverjum degi, en ég held að ég væri virkari hérna ef fleiri væru það líka.  En við prufum kannski eitthvað áfram.0

Ég var aðeins að leika mér með photoshop og gerði þessa mynd

http://helgarun.barnaland.is/album/img/2862/20060118181334_0.jpg

Kv. Brynja


» 0 hafa sagt sína skoðun